Endurskoða þarf veiðigjöldin frá grunni. Ekki er raunhæft að skattlegja einstök sjávarútvegsfyrirtæki byggt á heildarafkomu í greininni. Þetta segir Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte.

Ný skýrsla Íslandsbanka var kynnt í morgun sem fjallar um íslenska sjávarútveginn. Útflutningsverðmæti námu 269 milljörðum krona árið 2012 og hafa aldrei verið meiri.

VB Sjónvarp ræddi við Þorvarð.