Jóhann Gunnar Stefánsson, annar aðaleigandi og framkvæmdastjóri Háfells undanfarin 6 ár, hefur ákveðið að láta af störfum fyrir félagið um næstkomandi mánaðarmót.

Jóhann Gunnar Stefánsson.
Jóhann Gunnar Stefánsson.

Ekki verður breyting á eignarhaldi félagsins samhliða brotthvarfi Jóhanns Gunnars sem mun áfram eiga sinn hlut og sitja í stjórn félagsins.

Háfell er eitt af elstu verktakafyrirtækjum landsins og vann  m.a. við gerð Héðinsfjarðarganga haustið 2010.