Julie Hamp, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Toyota, var handtekin í Japan í gær fyrir brot gegn fíkniefnalöggjöf landsins. CNN greinir frá þessu.
Hamp er grunuð um að reynt að flytja inn í landið pakka af verkjalyfinu oxycodone, sem er löglegt í Bandaríkjunum en skilgreint sem ólöglegt fíkniefni í Japan.
Scott Vazin, talsmaður Toyota, segir fyrirtækið hafa fengið fréttir af handtökunni og hefur heitið fullri samvinnu við japönsk stjórnvöld við rannsókn málsins. Hins vegar kveðst hann fullviss um að Hamp hafi ekki ætlað sér að brjóta gegn japönskum lögum og rannsóknin muni leiða það í ljós.
Hamp var skipuð framkvæmdastjóri samskiptasviðs Toyota í apríl síðastliðnum og hefur engin kona hlotið æðri stöðu innan fyrirtækisins.