Þorsteinn Fr. Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Starf – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. sem er samstarfsfyrirtæki Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um tilraunaverkefni ASÍ og SA um þjónustu við atvinnuleitendur.

Þorsteinn gegndi síðast starfi framkvæmdastjóra Stjórnlagaráðs/þings og þjóðfundar 2010 á vegum Alþingis. Áður var hann framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta í 18 ár og rekstrarráðgjafi þar á undan.