Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunar og mannauðs í Landsbankanum, hefur látið af störfum í bankanum samkvæmt gagnkvæmu samkomulagi, að því er kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að Landsbankinn hafi unnið að hagræðingu og breytingum á sínum rekstri og að þessi breyting sé liður í því. Við þetta fækkar framkvæmdastjórum bankans í sex. Svið Þróunar og mannauðs verður lagt niður og einingar fluttar undir aðra í framkvæmdastjórn.

Jensína var ráðin í stöðu framkvæmdastjóra í Landsbankanum í október 2010. Hún var um tíma stjórnarformaður Reiknistofu bankanna og hefur setið í stjórn Frumtaks samhliða starfi sínu og verður áfram fulltrúi bankans þar.

Í tilkynningunni þakkar Steinþór Pálsson bankastjóri Jensínu fyrir starf hennar fyrir bankann. Hún hafi verið öflugur samstarfsmaður og leitt fjölda verkefna við að breyta bankanum. Það sé eftirsjá að Jensínu og vilji hann óska henni alls hins besta í framtíðinni.