Birna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastýra Evrópustofu — upplýsingamiðstöðvar ESB . Birna var yfirmaður verkefnaskrifstofu UNIFEM (nú UN Women) í Serbíu og Svartfjallalandi 2008-2010 og framkvæmdastýra landsnefndar UNIFEM á Íslandi 2004-2006. Birna er með MA-gráðu í alþjóðlegum öryggismálafræðum frá Georgetown University í Bandaríkjunum.