Ágúst H.Leósson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Actavis Group hf. mun láta af störfum hjá félaginu þann 1.apríl nk. Leit að framkvæmdastjóra fjármálasviðs er þegar hafin og verður ráðið stöðuna á næstu misserum segir í tilkynningu félagsins.

Þá hefur Matthías H. Johannessen, viðskiptafræðingur (M.Sc.) verið ráðinn sem fjármálastjóri (Finance Director) Actavis Group og mun hann heyra undir framkvæmdastjóra fjármálasviðs samstæðunnar. Matthías hefur m.a. starfað hjá KB banka, HSH Nordbank í Kaupmannahöfn og hefur víðtæka fjármálareynslu. Matthías mun hefja störf fljótlega hjá félaginu.


"Ágúst hefur skilað mjög góðu starfi þann tíma sem hann hefur verið hjá Actavis og mig langar fyrir hönd framkvæmdastjórnar félagsins að þakka honum fyrir framlag sitt." sagði Róbert Wessman, forstjóri Actavis í tilkynningu félagsins.