Sveinn Þór Stefánsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Meiðs ehf. Hann hóf störf hjá félaginu þann 1.desember síðastliðinn. Sveinn Þór er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur undanfarin ár starfað hjá Lýsingu hf. við fjármálastjórn og fjármögnun atvinnutækja.

Meiður ehf. er stærsti hluthafinn í KB Banka, Bakkavör Group og Medcare Flögu. Félagið er í meirihlutaeigu Bakkabræðra en auk þess eiga KB Banki og nokkrir sparisjóðir hlut í félaginu. Höfuðstöðvar félagsins verða að Tjarnargötu 35 í Reykjavík.