Helgi Anton Eiríksson, framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs Glitnis, hefur keypti fyrir um 211 milljónir króna í bankanum, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 8.000.000 hluti, keypta á genginu 26,4. Þegar þetta er skrifað er markaðsgengi Glitnis 26,7, samkvæmt upplýsingum frá M5.

Eftir viðskiptin á hann 10.014.132 hluti í bankanum og á kauprétt að 10.000.000 hlutum.