Framkvæmdastjóri Icelandic China, Hans Bragi Bernharðsson, mun láta af störfum á næstu mánuðum. Hann mun áður en að starfslokum kemur vinna að sameiningarferli Icelandic China og Blue Ice í Asíu. Hans Bragi tekur við sem framkvæmdastjóri Enex-Kína.