Icelandic Group og Kristján Hjaltason framkvæmdastjóri Icelandic France, dótturfyrirtækis Icelandic Group, hafa gert samkomulag um að Kristján láti af störfum nú þegar en Kristján hefur stýrt Icelandic France frá því í nóvember 2005, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kristján hóf störf hjá Icelandic Group á árinu 1986 og hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri á Íslandi, í Þýskalandi og Frakklandi. Í tilkynningu Icelandic Group þakkar Kristjáni fyrir langa og góða þjónustu við félagið og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Jean Max Martel mun taka við stjórn Icelandic France en síðastliðin tvö ár hefur hann verið einn af stjórnendum félagsins. Jean Max var eigandi Comigro Geneco.