Í morgun var fyrsta skóflustungan tekin að nýju húsi Ölgerðarinnar.  Húsið mun rísa vestan við núverandi byggingar fyrirtækisins við Grjótháls og tengjast þeim.  Að loknum framkvæmdum mun allur rekstur Ölgerðarinnar rúmast undir einu þaki, segir í fréttatilkynningu.

Nú er starfsemin á 7 stöðum í borginni enda hafa umsvif fyrirtækisins aukist til muna eftir að Ölgerðinn Egill Skallagrímsson og Danól sameinuðust undir merkjum Ölgerðarinnar um áramótin.  Við sameininguna varð til næst stærsta matvælafyrirtæki landsins.  Nýja byggingin verður 12.5000 fermetrar að stærð og þar verða lager og skrifstofur Ölgerðarinnar til húsa.

Þeir starfsmenn sem lengstan starfsaldur hafa hjá hvoru af hinum nýsameinuðu fyrirtækjum tóku fyrstu skóflustunguna, þau Gunnar Karlsson sem starfað hefur hjá Ölgerðinni í 45 ár og Guðríður Ottadóttir sem hóf störf hjá Danól árið 1979. Nýja húsið verður tekið í notkun á fyrri hluta næsta árs. Byggingarframkvæmdir eru í höndum Íslenskra aðalverktaka.  Arkitektar eru Guðmundur Gunnarsson og Elín Kjartansdóttir hjá arkitektur.is og verkefnisstjóri af hálfu Ölgerðarinnar er Lárus Berg.

Forstjóri Ölgerðarinnar er Andri Þór Guðmundsson og Októ Einarsson er stjórnarformaður.  Starfsmenn eru um 270.