Actavis hefur fengið markaðsleyfi fyrir veirusýkingalyfið Valaciclovir í Japan í samstarfi við japanska fyrirtækið ASKA. Veiting leyfisins markar tímamót enda er þetta fyrsta lyfið sem er þróað og framleitt hér á landi fyrir almennan markað í Japan, að því er fram kemur í tilkynningu frá Actavis.

Ennfremur segir í tilkynningu að lyfjamarkaðurinn í Japan er einn sá kröfuharðasti í heimi bæði hvað snerti þróun og framleiðslu. Japönsk yfirvöld hafa þegar gert úttekt á verksmiðju Actavis á Íslandi og samþykkt hana til framleiðslu lyfja til sölu þar í landi, sem er mikil viðurkenning fyrir Actavis.

Japan er næststærsti lyfjamarkaður í heimi og hafa japönsk yfirvöld lagt mikla áherslu á að auka hlutdeild samheitalyfja á markaðnum og eru því vaxtartækifæri á þessum hluta markaðarins mikil á næstu árum.

Þriðja stærsta samheitafyrirtæki í heimi

Í kjölfar kaupa Watson Pharmaceuticals á Actavis á síðasta ári er fyrirtækið orðið þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi, með starfsemi í rúmlega 60 löndum. Fyrirtækið áætlar að tekjur á árinu 2013 verði um 8,1 milljarður bandaríkjadala. Hjá Actavis á Íslandi starfa tæplega 800 manns. Starfsemin á Íslandi er leiðandi í rannsóknum og þróun nýrra lyfja og hefur umsjón með framkvæmd skráningarferla fyrir alþjóðlega markaði. Verksmiðjan á Íslandi hefur framleiðslugetu upp á 1,5 milljarða taflna og hylkja á ári og um 95% af því er flutt út.