Finnsku húsgagnafyrirtækin Artek og Littala hafa boðað komu sína á HönnunarMars, sem verður haldinn dagana 22.-25. mars næstkomandi. Artek framleiðir og selur húsögn Alvars Aalto.

Í tilkynningu frá Hönnunarmiðstöð segir að augljóslega sé mikill fengur að komu fyrirtækjanna, enda meðal allra þekktustu og stærstu fyrirtækja á sínu sviði á Norðurlöndunum og víðar.

Hönnunarmiðstöð og Norræna húsið standa fyrir kaupstefnunni DesignMatch í tengslum við HönnunarMars. Þar býðst hönnuðum að kynna vörur sínar fyrir þeim aðilum sem koma til landsins, að því er Hönnunarmiðstöð greinir frá.