Lyfjafyrirtækið Actavis hefur tekið ákvörðun um að færa framleiðslu lyfjaverksmiðjunnar á Íslandi til annarra framleiðslueininga samstæðunnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að þetta sé gert í hagræðingarskyni og liður í því að tryggja samkeppnishæfni fyrirtækisins á alþjóðavettvangi. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á starfseminni á næstunni og mun þessi ákvörðun ekki hafa áhrif á störf hjá framleiðslueiningunni að svo stöddu.

Fyrstu breytinga fer að gæta í árslok 2016 þegar fyrstu áfangar í flutningi framleiðslunnar hefjast. Gert er ráð fyrir að starfsemi verksmiðjunnar á Íslandi verði lögð niður um mitt ár 2017.

Önnur starfsemi á Íslandi verður óbreytt en hérlendis er fjölbreytt alþjóðleg starfsemi, m.a. á sviði lyfjaþróunar fyrir alþjóðamarkaði, skráningarsvið sem ber ábyrgð á skráningum og viðhaldi markaðsleyfa út um allan heim, alþjóðlegt gæðasvið og fjármálasvið, auk sölu- og markaðssviðs sem sinnir Íslandsmarkaði, sem og ýmis stoðsvið.

300 starfsmenn hjá framleiðslueiningunni

Um það bil 300 starfsmenn eru hjá framleiðslueiningunni á Íslandi en um það bil 400 starfsmenn í öðrum einingum fyrirtækisins hér á landi.

„Ég vil taka sérstaklega fram að þessi ákvörðun endurspeglar ekki frammistöðu starfsmanna enda hefur framleiðslueiningin á Íslandi skilað framúrskarandi árangri undanfarin ár og verið til fyrirmyndar þegar kemur að gæðastjórnun, öryggismálum og þjónustu við viðskiptavini. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við starfsfólk okkar til að auðvelda aðlögun að breyttum aðstæðum,“ segir Robert Stewart, forstjóri samheitalyfjasviðs og alþjóðaframleiðslu samstæðunnar.

Hanns segir fyrirtækið muni veita stuðning, bjóða upp á þjálfun um umbuna starfsfólki fyrir að vinna með því í gegnum breytingarnar. „Að lokum vil ég leggja áherslu á að við erum ekki að fara frá Íslandi – við munum halda áfram að byggja upp þær öflugu einingar sem hér starfa svo sem á sviði þróunar, skráninga, gæðamála, fjármála og sölu- og markaðsmála. Þá verða höfuðstöðvar Medis áfram hér á landi.“

Hámarka nýtingu á framleiðslugetu samstæðunnar

Actavis hefur farið í gegnum margvíslegar breytingar á undanförnum árum með yfirtökum og samrunum innan lyfjageirans. Eftir nýlegan samruna við bandaríska frumlyfjafyrirtækið Allergan hefur fyrirtækið breyst frá því að vera samheitalyfjafyrirtæki í alhliða lyfjafyrirtæki sem sinnir jöfnum höndum þróun, framleiðslu og markaðssetningu frumlyfja, samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja. Í dag er fyrirtækið orðið eitt af tíu stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi, með starfsemi í 100 löndum og yfir 30.000 starfsmenn.

Fram kemur í tilkynningunni að unnið hafi verið að yfirgripsmikillii greiningu á framleiðslustarfsemi samstæðunnar víða um heim til þess að hámarka nýtingu á framleiðslugetu. Niðurstöður þeirrar úttektar séu þær að aðrar verksmiðjur samstæðunnar hafi svigrúm til að taka við þeim vörum sem framleiddar eru á Íslandi. Með viðbótarnýtingu tækja og mannafla, hagstæðu rekstrarumhverfi og auknu framleiðslumagni aukist hagræðing til muna.