Dagskrár- og framleiðslukostnaður RÚV nam rúmlega 3,5 milljörðum, rekstrarárið 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Hagnaður af rekstri RÚV var 16 milljónir en hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 553 milljónir króna. Samkvæmt efnahagsreikningi félagsins nema eignir þess 5.560 milljónum, bókfært eigið fé í lok rekstrarársins er nú 737 milljónir og eiginfjárhlutfallið er 13,3%.

Annað rekstrarárið í röð skilar rekstur RÚV jákvæðri niðurstöðu en þetta er þriðja árið í röð sem hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) er meiri en 500 milljónir.

Í fréttatilkynningu kemur fram að þegar rekstrarforminu var breytt vorið 2007 hafi forráðamenn félagsins lýst því markmiði að ná jafnvægi í rekstri innan tveggja ára. Það markmið hafi náðst og áfram sé haldið á sömu braut.