Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,3% milli nóvember og desember 2017 að því er Hagstofan segir frá. Sjávarafurðir hækkuðu um 1,9%, sem hefur 0,5% áhrif á vísitölu, en afurðir stóriðju lækkuðu um 0,7%, sem hafa -0,2% áhrif á vísitölu.

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 2,4% frá desember 2016 til desember 2017. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 3,8% en annar iðnaður lækkaði um 8,9%.

Afurðir stóriðju hafa hækkað um 11,5% en matvæli lækkað um 0,7% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,1% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 4,3%.