Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 0,4% milli september og október 2017 að því er kemur fram í frétt Hagstofu. Sjávarafurðir lækkuðu og höfðu áhrif til 0,3 prósentustiga lækkunar á vísitöluna en  afurðir stóriðju hækkuðu og höfðu 0,7 prósentustiga áhrif til hækkunar vísitölunnar.

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 0,5% frá október 2016. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 0,4% og annar iðnaður lækkaði um 17,9%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 18,7% en matvæli lækkað um 2,9% á sama tímabili. Útfluttar afurðir hækkuðu um 5,5% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 8,4%.