Vísitala framleiðsluverðs í desember 2014 var 223,0 stig og hækkaði um 3,3% frá nóvember 2014. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 273,5 stig, sem er hækkun um 2,1% (vísitöluáhrif 0,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 237,6 stig, hækkaði um 6,5% (2,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% (0%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,2% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,9% (0,2%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 4,2% (3,1%).

Miðað við desember 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,2% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 9,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 24,9% og matvælaverð hefur hækkað um 1,1%.