Milli júní og júlí síðastliðinn hækkaði vísitala framleiðsluverð um 2,2% að því er Hagstofan greinir frá. Hækkuðu sjávarafurðir um 3,8%, stóriðju um 2,0%, annar iðnaður um 1,8% og matvæli um 0,5%. Ef horft er til breytingarinnar yfir árið þá hefur vísitalan hins vegar lækkað um 2,8% frá júlí 2015. Þar af verð sjávarafurða um 8,7% og annar iðnaður um 20,5%.

Afurðir stóriðju hafa staðið í stað og matvæli lækkað um 2,4% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,5% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 10,2%.