Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2014 var 201,4 stig og hækkaði um 0,8% frá júnímánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 257,3 stig, sem jafngildir hækkun um 1,3% frá fyrri mánuði. Vísitala fyrir stóriðju var 196 stig og hækkaði um 4,4% og vísitala fyrir matvæli hækkaði um 0,1%. Fyrir annan iðnað lækkaði vísitalan um 6,6%.

Fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði vísitalan um 2,3% milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,9%.

Miðað við júlí 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 0,8% en verðvísitala sjávarafurða hefur hækkað um 3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 5,8%, en matvælaverð hækkað um 2,3%.