Vísitala framleiðsluverðs í október 2014 var 214,6 stig og hækkaði um 1,2% frá september 2014, samkvæmt tölum frá Hagstofunni .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hafði áhrif á vísitöluna en hún var 263,9 stig, sem er hækkun um 2,0% frá fyrri mánuði. Vísitala fyrir stóriðju var 222,7 stig og hækkaði um 0,7%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,7% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,8%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,7% milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,3%.

Miðað við október 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,5% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 4,1%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 12,1% og matvælaverð hefur hækkað um 0,9%.