Vísitala framleiðsluverðs í maí 2014 var 197,9 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,7% frá apríl 2014. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 250,6 stig, sem er hækkun um 0,5% (vísitöluáhrif 0,1%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 192,0 stig, hækkaði um 7,3% (2,4%). Vísitalan fyrir matvæli stendur í stað milli mánaða og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 5,1% (-0,8%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,9% (-0,5%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 2,9% (2,2%).

Miðað við maí 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 2,2% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 1,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 8,3% en matvælaverð hefur hækkað um 1,7%.