Vísitala framleiðsluverðs í september 2014 var 212,2 stig og hækkaði um 1,7% frá ágúst 2014. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 258,8 stig, sem er lækkun um 1,8% (vísitöluáhrif -0,6%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 221,3 stig, hækkaði um 4,8% (1,6%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,4% (-0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 5,0% (0,8%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,4% (0,4%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 1,9% (1,3%).

Miðað við september 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 4,4% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 2,5%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 8,5% og matvælaverð hefur hækkað um 1,6%.