Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 3,6% milli apríl og maí 2018. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar . Afurðir stóriðju hækkuðu um 11,8%, sjávarafurðir hækkuðu um 0,5%, á meðan annar iðnaður lækkaði um 1,9%.
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 8,5% frá maí 2017 til maí 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 19,9%, sjávarafurðir hækkað um 8,2% og matvæli hækkað um 0,6%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 1,8% á sama tímabili.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 12% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 2,2%.