Vísitala framleiðsluverð var 223,7 stig í mars og hækkaði um 2,7% frá febrúar. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands í dag.

Vísitala framleiðsluverðs sjávarafurða hækkaði um 2,2% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju hækkaði um 4,5%. Vísitala fyrir matvæli lækkaði um 0,2% en fyrir annan iðnað hækkaði hún um 2,1%.

Miðað við mars 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,4% en verðvísitala sjávarafurða um 12,9%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 3,9% en matvælaverð hefur hækkað um 5,0%.