Vísitala framleiðsluverðs í júní 2015 var 221,8 stig og lækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði, samkvæmt nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 277,3 stig, sem er hækkun um 1,0% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 225,8 stig, lækkaði um 1,1% (-0,4%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% (0,0%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,9% (-0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,4% (-0,1 %) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 0,3% (-0,3%).

Miðað við júní 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 11,0% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 9,2%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 20,2% en verð á matvælum hækkað um 0,3%.