Vísitala framleiðsluverðs í ágústmánuði var 211,6 stig og lækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 2,9% (vísitöluáhrif eru -0,9%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 4,3% (-1,4%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,2% (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað stóð í stað milli mánaða.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,8% (0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 3,4% (-2,4%).

Miðað við ágúst 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,5% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 3,3%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 4,4% en verð á matvælum hækkað um 2,7%.