Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,6% milli nóvember og desember 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 5,5%, annar iðnaður hækkaði um 1,3%.

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 9,5% frá desember 2017 til desember 2018. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 13,4%, afurðir stóriðju hækkuðu um 10,9%, annar iðnaður hækkaði um 7,7% og matvæli hækkuðu um 3,0%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 11,9% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 5,2%.