Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,7% milli febrúar og mars 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 3,4% sem hafa áhrif til lækkunar vísitölunnar um 1,1%. Sjávarafurðir lækkuðu um 1,2% sem hafa áhrif til lækkunar um 0,3% og annar iðnaður lækkaði um 1,4% sem hafa einnig áhrif til 0,3% lækkunar.

Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 3,7% frá mars 2017 til mars 2018. Þar af hafa afurðir stóriðju hækkað um 8,0%, verð sjávarafurða hækkað um 6,6% og matvæli hækkað um 0,9%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 4,7% á sama tímabili.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 6,4% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands lækkuðu um 1,5%.