Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2014 var 64,2 milljarðar á grunnverði þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum og jókst um 4,3% á árinu. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Virði afurða búfjárræktar er talið vera 41,7 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 9,9 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru tæpir 19,5 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 291 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 48,5 milljarðar árið 2014 og jókst um 4,2% frá fyrra ári.

Aukningu í framleiðsluvirði árið 2014 má rekja meira til magnbreytinga en verðbreytinga. En breytingu á notkun aðfanga má rekja til 6,5% magnaukningar og 2,2% hækkunar á verði.