Pantanir á framleiðsluvörum í Bandaríkjunum drógust saman um 1,3% í febrúarmánuði.

Endurskoðaðar hagtölur fyrir janúar sýndu jafnframt að pantanir höfðu dregist saman um 2,3% á milli mánaða, sem endurspeglar niðursveiflu í framleiðslugeiranum og efnahagslífi Bandaríkjanna.

Framleiðslupantanir í febrúar minnkuðu meira á milli mánaða heldur en spár greinenda gerðu ráð fyrir, en hagfræðingar höfðu búist við 0,8% samdrætti.