Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2008 var 197,1 stig og hækkaði um 5,4% frá október.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Þar kemur fram að vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 248,3 stig, sem er hækkun um 9,9% (vísitöluáhrif 3,0%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 254,5 stig, hækkaði um 2,2% (0,6%).
Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 3,7% frá október (0,6%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 4,4% (1,3%).
Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 2,7% (1,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 6,8% (4,2%).
Þá kemur einnig fram að frá nóvember 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 68,5% og verðvísitala sjávarafurða um 93,1%.
Á sama tíma hafa afurðir stóriðju hækkað um 101,2% en matvælaverð um 22,4%.