Einar Skúlason, skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 2010.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Einari. Einar er 38 ára Reykvíkingur og þriggja barna faðir og hefur alið mestalla sína tíð í borginni. Hann er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskólanum í Edinborg. Á háskólaárunum var hann virkur í stúdentapólitíkinni, sat í stúdentaráði fyrir Röskvu og gegndi starfi framkvæmdastjóra Stúdentaráðs árin 1996-1997.
Hann starfaði í tæp sex ár sem framkvæmdastjóri Alþjóðahússins og réðst um síðustu áramót til starfa sem skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna, en því starfi hefur Einar nú sagt lausu samhliða tilkynningu um framboð.
Í tilkynningunni kemur fram að Einar hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn, sat m.a. í framkvæmdastjórn Sambands ungra framsóknarmanna árin 1996-2002, þar af síðustu þrjú árin sem formaður. Þá hefur hann átt sæti í landsstjórn flokksins og situr nú í miðstjórn. Hann er jafnframt varaþingmaður fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður.
„Einar leggur áherslu á uppbyggingu umhverfisvænnar og öruggrar borgar sem skapar góða umgjörð um íbúana,“ segir í tilkynningunni.
„Hann vill leggja sérstaka áherslu á málefni barna og unglinga og tryggja eftir megni að þau eða aðrir viðkvæmir hópar samfélagsins þurfi ekki að axla byrðar vegna erfiðra aðstæðna. Þá er mikilvægt að halda áfram að byggja upp virkt samráð við íbúa um stærri ákvarðanir, þar sem gagnsæi, upplýsingamiðlun og heiðarleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Mikilvægt er að skapa góða umgjörð um atvinnulífið og hvetja til nýsköpunar fólks og fyrirtækja í borginni. Mannauðurinn er til staðar og gríðarleg tækifæri fólgin í honum.“