Framsóknarflokkurinn býður fram lista með óháðum í Hafnarfirði og er Ágúst Bjarni Garðarsson oddviti listans. Í fréttatilkynningu segir að flokkurinn sé jafnframt tilbúinn að vinna með öllum stjórnmálaflokkum í bænum.

Meðal loforða framboðsins er að börn komist inn á leikskóla við 12 mánaða aldur, fríar skólamáltíðir fyrir grunnskólabörn, lækka lóðaverð og bæta akstursþjónustu fyrir eldri borgara.

Hér má sjá framboðslista Framsóknar og óháðra í Hafnarfirði:

  • 1. Ágúst Bjarni Garðarsson, 30 ára, Aðstoðarmaður ráðherra
  • 2. Valdimar Víðisson, 39 ára, Skólastjóri Öldutúnsskóla
  • 3. Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, 40 ára, Félagsráðgjafi
  • 4. Margrét Vala Marteinsdóttir, 32 ára, Forstöðumaður Reykjadals
  • 5. Einar Baldvin Brimar, 20 ári, Nemi við Flensborgarskólann
  • 6. Magna Björk Ólafsdóttir, 38 ára, Bráðahjúkrunarfræðingur
  • 7. Brynjar Þór Gestsson, 44 ára, Knattspyrnuþjálfari
  • 8. Anna Karen Svövudóttir, 41 ára, Þýðandi og túlkur
  • 9. Þórður Ingi Bjarnason, 45 ára, Ferðamálafræðingur
  • 10. Jóhanna Margrét Fleckenstein, 41 ára, Forstöðumaður
  • 11. Árni Rúnar Árnason, 45 ára, Forstöðumaður íþróttamannvirkja
  • 12. Njóla Elísdóttir, 59 ára, Hjúkrunarfræðingur
  • 13. Guðmundur Fylkisson, 52 ára, Lögreglumaður
  • 14. Selma Dögg Ragnarsdóttir, 34 ára, Byggingaiðnfræðingur
  • 15. Ingvar Kristinsson, 55 ára, Verkfræðingur
  • 16. Linda Hrönn Þórisdóttir, 43 ára, Uppeldis- og menntunarfræðingur
  • 17. Ólafur Hjálmarsson, 67 ára, Vélfræðingur
  • 18. Elísabet Hrönn Gísladóttir, 43 ára, Hársnyrtir
  • 19. Guðlaugur Siggi Hannesson, 29 ára, Laganemi
  • 20. Þórey Anna Matthíasdóttir, 60 ára, Atvinnubílstjóri og leiðsögumaður
  • 21. Sigurður Eyþórsson, 47 ára, Framkvæmdarstjóri
  • 22. Elín Ingigerður Karlsdóttir, 79 ára Matráðskona