Framsóknarflokkurinn er hástökkvarinn í síðustu fylgismælingu MMR sem gerð var á tímabilinu 4. til 14. júní síðastliðinn. Flokkurinn mældist þá með 8,8% fylgi en mælist nú með 12,3% fylgi.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um 1,6% samkvæmt nýjustu mælingum og mælist 25,4% miðað við 27% frá fyrri könnun sem var gerð um miðjan júní. Jafnframt lækka Vinstri græn um 0,5% og mælast með 11,9% fylgi. Þrátt fyrir að fylgi ríkisstjórnarflokkanna, að Framsóknarflokknum undanskildum, hafi lækkað jókst stuðningur við ríkisstjórnina um 1,2% og mælist nú 54,9%.
Þá lækka Píratar um tæpt prósentustig og mælast nú með 12,2% fylgi miðað við 13,1% frá fyrri könnun. Þá lækkar Samfylkingin um 0,6% og mælist með 11,2% fylgi og Miðflokkurinn lækkar sömuleiðis líka og mælist með 6,6% fylgi miðað við 7,3% í síðustu könnun.
Viðreisn sækir í sig veðrið og mælist með 9,1% fylgi og hækkar um 1,3% frá síðustu könnun. Fylgi Flokks fólksins, með 5,5% fylgi, og Sósíalistaflokks Íslands, með 5,3% fylgi, helst óbreytt.