Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi en fylgi Framsóknarflokksins dalar áfram, samkvæmt nýlegri mælingu MMR á fylgi stjórnmálaflokkanna. Könnunin var gerð 25. - 29. október

„Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 28,6%, borið saman við 26,5% í síðustu mælingu. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,5%, borið saman við 17,3% í síðustu mælingu. Vinstri-græn mældust nú með 14,8% fylgi, borið saman við 12,6% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 13,2%, borið saman við 15,4% í síðustu mælingu. Björt framtíð mældist nú með 12,1% fylgi, borið saman við 12,2% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mældist nú með 8,4% fylgi, borið saman við 7,7% í síðustu mælingu,“ segir í tilkynningu frá MMR vegna könnunarinnar.

Samkvæmt niðurstöðum þessarar skoðunarkönnunar er Sjálfstæðisflokkurinn með litlu meira fylgi en hann var með í síðustu kosningum, en þá fékk hann 26,7% atkvæða. Framsóknarflokkurinn fékk aftur á móti 24,4% atkvæða í síðustu kosningum og hefur því tapað liðlega 10 prósentustigum. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa allir bætt verulega við sig frá kosningunum.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,0%), myndu skila auðu (5,4%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1034 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 25. til 29. október 2013