Nú fer fram kosning til formanns á flokksþingi framsóknarmanna sem fram fer í Valsheimilinu. Alls 964 framsóknarmenn hafa atkvæðisrétt. Fimm bjóða sig fram til embættisins.

Það eru þeir: Höskuldur Þórhallsson, Jón Vigfús Guðjónsson, Lúðvík Gizurarson, Páll Magnússon og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Nái enginn þeirra yfir 50% atkvæða verður kosið á ný milli tveggja efstu.

Að því búnu fer fram kosning til varaformanns flokksins og ritara.