Kvos ehf. hefur nú skrifað undir samning við Framtakssjóð Íslands um kaup á Plastprenti ehf. Þetta er niðustaða opins söluferlis Plastprents en samningurinn er gerður með fyrirvara um að Samkeppniseftirlitið samþykki kaupin.

Straumur fjárfestingarbanki sá um formlegt söluferli Plastprents sem var opið öllum sem uppfylltu tilheyrandi skilyrði.

Plastprent var stofnað árið 1957 og í dag starfa hjá félaginu um 75 manns.