Framtakssjóður Íslands hefur falið Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. að hafa umsjón með sölu á 10% hlutafjár í Icelandair Group.

Hlutaféð er boðið til sölu til fagfjárfesta með áskriftarfyrirkomulagi. Lágmarksverð er kr. 5,42 á hlut sem er dagslokagengi á síðasta viðskiptadegi, föstudaginn 4. nóvember.

Frestur til að skila inn tilboðum er til kl.  18.00 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framtakssjóðnum til Kauphallarinnar.

Framtakssjóðurinn á í dag um 29% hlut í félaginu.