Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu sextán lífeyrissjóða, hagnaðist um 2.343 milljónir króna í fyrra samanborið við 700 milljónir árið 2010.
Fram kemur í uppgjöri sjóðsins að heildareignir námu 28,2 milljörðum króna um áramótin en voru 5,6 milljarðar á sama tíma árið 2010. Eigið fé í árslok var 27,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 97,9%.
Brynjólfur Bjarnason er framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins.
Eignarhlutir Framtakssjóðsins í fyrirtækjum eru færðir á kostnaðarverði í bókum sjóðsins nema eignarhlutir í skráðum félögum sem eru metnir á markaðsverði. Hagnaður Framtakssjóðsins í fyrra skýrist samkvæmt því af hækkun markaðsvirðis Icelandair Group.
Sjóðurinn hefur, í samvinnu við endurskoðendur félagsins, lagt mat á áætlað gangvirði þeirra eignarhluta sem fjárfest hefur verið í og er metið að það sé ekki undir 39,3 milljörðum króna. Áætlað virði miðast við niðurstöður virðisrýrnunarprófa undirliggjandi eigna.
Í ársbyrjun 2011 var hlutur sjóðsins í Icelandair Group eina hlutabréfaeign félagsins. Á árinu bættust eignarhlutir í alls 7 félögum í eignasafn Framtakssjóðsins. Þetta eru Advania, Húsasmiðjan, Vodafone, N1, Icelandic Group, Plastprent og Promens. Á síðasta rekstrarári seldi svo sjóðurinn eignarhluti í tveimur félögum. Annars vegar 10% hlut í Icelandair og 100% í Húsasmiðjunni.