Framtakssjóður Íslands  (FSÍ) hefur keypt 15,8% hlutafjár í verslunar- og þjónustufyrirtækinu N1 af Íslandsbanka og Glitni, að því er kemur fram í tilkynningu frá FSÍ. Sjóðurinn hefur jafnframt gert samkomulag við Íslandsbanka og nokkra aðra aðila, meðal annars lífeyrissjóði sem eiga fyrir hlut í N1, um að leggja hlutabréf sín inn í sameiginlegt félag.  „Það félag mun fara með meirihluta hlutafjár í N1 og leiða áfram þróun og uppbyggingu félagsins. Stefnt er að skráningu N1 í kauphöll á árinu 2013,“ segir í tilkynningu,

Í viðskiptunum nú kaupir Framtakssjóður alls um 10,3% hlutafjár í N1 af Skilanefnd Glitnis og um 5,5% af Íslandsbanka. Eftir viðskiptin á Skilanefnd Glitnis ekki hlut í N1. Endanlegt kaupverð Framtakssjóðsins mun ráðast af niðurstöðu rekstrar á árinu 2011 en tekur mið af heildarvirði félagsins við fjárhagslega endurskipulagningu þess. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri FSÍ segir í tilkynningu: „Við teljum N1 góðan fjárfestingarkost og spennandi fyrir Framtakssjóðinn að koma að þessu verkefni. N1 er eitt af fjölmörgum lykilfyrirtækjum í íslensku viðskiptalífi sem hafa að stærstum hluta endað í eigu banka í kjölfar efnahagshrunsins. Framtakssjóðurinn vill vera leiðandi aðili við að efla fyrirtækið, breikka eignarhald þess og stefna að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað. Efnahagur N1 er nú traustur og við teljum góð tækifæri í rekstrinum. Fyrirtækið hefur sterka markaðsstöðu, öflugt dreifikerfi og hefur leikið mikilvægt hlutverk í íslensku atvinnulífi, ekki síst á landsbyggðinni. Það er afar mikilvægt að nýta þessa sterku stöðu til að þjóna viðskiptavinum og hámarka arðsemi allra hluthafa.“