Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins, er sáttur við þau skilyrði sem Samkeppniseftirlitið setur fyrir kaupum Framtakssjóðsins á eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. Í tilkynningu er sagt að skilyrðin séu sett í því skyni að draga úr röskun á samkeppni sem gæti orðið við kaup sjóðsins á þeim atvinnufyrirtækjum sem sjóðurinn öðlaðist yfirráð yfir.

„Þegar Framtakssjóðurinn keypti Vestia af Landsbankanum sl. sumar voru kaupin eðlilega með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Við tókum fljótlega upp viðræður við eftirlitið sem nú hafa leitt til sameiginlegrar niðurstöðu um ákveðin skilyrði sem lúta að samkeppni á markaði og erum við sátt við þau og ánægð með það samkomulag sem nú hefur náðst,“ segir Finnborgi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, í tilkynningu frá sjóðnum.

Sextán lífeyrissjóðir standa á bak við Framtakssjóðinn. Með kaupunum á Vestia fékk hann yfirráð yfir Húsasmiðjunni hf., Plastprenti hf. og Icelandic Group hf. og að auki 62% í Teymi. Í viðskiptunum fólst jafnframt að NBI hf. (Landsbankinn) eignaðist fjórðungshlut í sjóðnum.

„Þótt ekki sé nema rúmt ár frá því að sjóðurinn hóf formlega starfsemi er hann nú þegar kominn með dreift og sterkt eignasafn öflugra fyrirtækja. Við stefnum á að setja einhver þeirra á almennan hlutabréfamarkað áður en langt um líður og þannig gefa almenningi kost á að eignast beint hlut í þeim,“ segir Finnbogi Jónsson ennfremur.