Fulltrúar sextán lífeyrissjóða innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða stofnuðu formlega í dag Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag. Stofnendur sjóðsins ráða yfir um 64% af heildareignum lífeyrissjóða á Íslandi. Stofnendur hafa skuldbundið sig til að leggja nýja fjárfestingarsjóðnum til um 30 milljarða króna í hlutafé. Enn er opið fyrir skráningu hlutafjár í sjóðnum.

Sjóðnum er ætlað að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.

Á stofnfundinum var kjörin sjö manna stjórn Framtakssjóðs Íslands. Hana skipa Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Auður Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, Baldur Þór Vilhjálmsson, forstöðumaður eignastýringar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi alþingismaður, Ragnar Önundarson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs  Háskólans í Reykjavík, og Vilborg Lofts, rekstrarstjóri heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Varamenn stjórnar eru Sigurbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs, Helga Indriðadóttir, sérfræðingur hjá Almenna lífeyrissjóðnum, og Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins.

Stjórnin kemur saman í fyrsta sinn fimmtudaginn 10. desember og skiptir með sér verkum. Gert er ráð fyrir að hún auglýsi innan tíðar starf framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands laust til umsóknar.

Markmið, fjárfestingarstefna og hluthafastefna

Í skilmálum fyrir Framtakssjóð Íslands er kveðið á um að hann skuli „ávaxta innborgað fé með fjárfestingum í íslenskum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum sem eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll.“ Markmiðið er að „byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta," eins og segir í tilkynningu.

Sjóðnum er heimilt að fjárfesta erlendis, til dæmis í tengslum við markaðssókn íslenskra fyrirtækja, ekki síst þegar möguleiki er á sameiningu eða samruna við fyrirtæki í eigu sjóðsins hér á landi segir í tilkynningu.

Sjóðurinn mun taka þátt í fjárfestingum sem stuðla að hagræðingu eða samruna fyrirtækja. Stjórn sjóðsins mun setja honum fjárfestingarstefnu að fenginni umsögn sérstaks tólf manna ráðgjafarráðs sem skipað verður samkvæmt tilnefningum hluthafa.