Slitastjórn Byrs sparisjóðs, fjármálaráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs og Byr hf. hafa náð samkomulagi um uppgjör og eignarhald Byrs hf. en samkomulag þess efnis var undirritað fimmtudaginn 14. október.

Hlutur ríkisins í Byr hf. verður 5,2% en 94,8% hlutur verður eign Byrs sparisjóðs en í vörslu og umsjón fjármálaráðuneytisins, í samstarfi við slitastjórn Byrs sparisjóðs, þar til slitastjórnin kallar eftir honum, en það er miðað við að það gerist innan tveggja ára.

Með þessu samkomulaginu verður Byr hf. fullfjármagnaður með nýjan stofnefnahagsreikning sem uppfyllir eiginfjár- og lausafjárkvaðir Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands.

Fjármálaráðuneytið mun veita Byr hf. allt að 5 milljarða króna víkjandi lán á markaðskjörum til 10 ára, sem ráðgert er að Byr hf. greiði upp á 5 árum. Kröfu Byrs sparisjóðs á Byr hf. verður breytt í hlutafé í Byr hf. en útgefið hlutafé í Byr hf. verður um 17,2 milljarðar. Samkomulag þetta fer nú til umfjöllunar hjá eftirlitsaðilum.