Ákvörðun um framtíð VBS fjárfestingarbanka verður tekin á fundi bráðabirgðastjórnar bankans eftir páskahelgina.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins kemur til greina að starfsemi bankans verði hætt og að hann verði settur í slitameðferð.

Öllum starfsmönnum VBS, 33 talsins, var sagt upp störfum í gær. Uppsagnirnar taka gildi frá og með morgundeginum og verður starfsmönnunum gert að vinna út uppsagnarfrest sinn ef þess reynist þörf.

Fjármálaeftirlitið (FME) varð í byrjun mars við beiðni VBS um að skipa bankanum bráðabirgðastjórn í samræmi við ákvæði laga um fjármálafyrirtæki. Það gerðist í kjölfar þess að VBS gat ekki staðið við 3,5 milljarða króna vaxtagreiðslu af 26,4 milljarða króna láni sem íslenska ríkið hafði veitt bankanum og var á gjalddaga 27. desember 2009.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .