Framtíðin lánasjóður - sem er í eigu sjóðs í stýringu hjá GAMMA Capital Management  - hefur veitt námsmönnum framfærslu- og skólagjaldalán frá árinu 2015. Nú býður Framtíðin einnig upp á almenn lán og húsnæðislán, samhliða því að veita áfram námslán að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fyrst um sinn verða húsnæðislán Framtíðarinnar viðbótarlán sem henta sem viðbót við lán frá lífeyrissjóði eða banka. Almenn lán Framtíðarinnar eru óveðtryggð lán fyrir allt að eina milljón króna.

Fram kemur í tilkynningunni að fyrirtækið bjóði upp á sérsniðna vexti, sem þýðir að vaxtakjör byggjast á lánhæifsmati og veðhlutfalli lántaka. Er Framtíðin fyrsta félagið á Íslandi sem mótar starfsemi sína með þeim hætti.

„Framtíðin er kvikt fyrirtæki sem getur brugðist hratt við eftirspurn. Við störfum eingöngu á netinu, erum með litla yfirbyggingu og um margt ólík þeim lánastofnunum sem fólk hefur áður fengið að kynnast. Veiting námslána hefur gengið vel hjá Framtíðinni og eru lántakendur almennt ánægðir með þjónustuna. Það liggur því beint við að veita aðrar tegundir lána. Þróunin á lánamörkuðum erlendis er hröð,nýir aðilar eru að festa sig sessi og það er ekki ólíklegt að markaðurinn hér á landi muni þróast í sömu átt. Við teljum að aukin samkeppni sé af hinu góða fyrir neytendur,“ segir Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar.