Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2014 viðurkenningu í dag, miðvikudaginn 4. febrúar, í Silfurbergi, Hörpu.

Fyrirtækin Heimsferðir, JRJ verktakar og Skinney Þinganes þóttu standa sig best miðað við skilyrði Creditinfo og fengu því sérstaka viðurkenningu sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, veitti.

Heimsferðir ehf. hækkuðu sig mest á milli ára en fyrirtækið var í 301. sæti af 464 fyrir árið 2013 en er komið í 133. sæti af 577 fyrirtækjum sem eru á lista Framúrskarandi fyrirtækja. Skinney-Þinganes hf. er efst þeirra fyrirtækja sem koma ný inn á listann. Þá eru JRJ verktakar ehf. efstir í sinni atvinnugrein, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, sem þykir erfiðust en í henni er hæst hlutfall fyrirtækja á vanskilaskrá.

Þetta er í fimmta sinn sem Creditinfo gefur út listann. Þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi uppfylla ákveðin skilyrði í rekstri, hafa skilað rekstrarhagnaði þrjú ár í röð, eignir eru metnar á að minnsta kosti 80 milljónir króna og eiginhlutfall er 20% eða hærra.

Fyrirtækin á listanum fyrir árið 2014 eru 577 talsins sem er um 1,7 % af þeim 34 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru á Íslandi. 102 fyrirtæki hafa verið á listanum frá upphafi. Fjöldi framúrskarandi fyrirtækja hefur aukist jafnt og þétt frá því listinn var fyrst birtur fyrir fimm árum síðan en þá komust 178 fyrirtæki á lista. Segja má að hagur fyrirtækja á Íslandi fari batnandi með hverju árinu vegna þess að skilyrðin til að komast á listann hafa verið þau sömu frá upphafi.

Sérblaðið Framúrskarandi fyrirtæki kemur út samhliða Viðskiptablaðinu á morgun þar sem finna má umfjöllun um tugi þeirra fyrirtækja sem eru á listanum. Blaðið er unnið í samstarfi við Creditinfo.