Franz Páll Sigurðsson
Franz Páll Sigurðsson

Frans P. Sigurðsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Fjármála hjá Landsbankanum í byrjun ágúst. Frans kom til Landsbankans í október 2010 frá GlaxoSmithKline, en hann var fjármálastjóri fyrirtækisins á Íslandi og í Noregi, þar sem hann hafði aðsetur.

Hjá Landsbankanum gegndi Frans meðal annars stöðu stjórnarmanns í Horni fjárfestingarfélagi og átti sæti í áhættu- og fjármálanefnd.