Frávísunarkröfu Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrum bankastjóra Landsbankans, í máli slitastjórnar bankans gegn honum var hafnað í Héraðsdómi Reykavíkur í dag. Vísir.is greinir frá þessu í dag.

Slitastjórn bankans hefur stefnt Sigurjóni og krefst riftunar á 300 milljóna króna greiðslu bankaráðs Landsbankans til Sigurjóns. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Sigurjóns, segir í samtali við Vísi að farið hafi verið fram á frávísun vegna þess að málið var höfðað eftir að sex mánuðir voru liðnir frá lokum riftunarfrests. „„Við töldum að það væri ekki hægt að lengja riftunarfrestinn með því að setja ný lög eftir að hann væri byrjaður að líða," segir Sigurður.

Dómarinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það væri hægt að lengja riftunarfresti eftir að þeir væru byrjaðir að líða með sérstökum lögum.